Okkur er það mikil ánægja að kynna til sögunnar nýjustu vídeóupptökuvélina frá SwimRight, SharkEye Tracker. Þett er fyrirferðarlítil og létt vél, sem auðveld er í notkun.Vélina má nota til upptöku undir yfirborði vatnsins. Vídeóvélin er fest á endann á útdraganlegri stöng sem fylgir. Á hinum enda stangarinnar er upptökutækið, lítill svartur kassi, þar sem SD diskur er settur í til upptöku. Vélin er fyriferðarlítil, vegur aðeins 0.9 kg og kemst auðveldlega fyrir í venjulegri íþróttatösku, ef vera vill. Fljótlegt er fyrir önnum kafinn þjálfara eða kennara að gera vélina tilbúna til notkunar. Vélinni fylgir allt það sem þarf til góðrar upptöku. Upptökur má skoða strax að henni lokinni, því skjár er á upptökuboxinu. Þá er auðvelt að taka SD diskinn og flytja hann yfir í tölvu til skoðunar. Einnig er mögulegt að tengja upptökuboxið við skjá og skoða upptökuna þannig. |