IMG_1836+
Aqua_logo++

Bæjarlind 1-3, 
201 Kópavogur
sími: 564 0035
Netfang:

aquasport@aquasport.is

Opnunartími:
Virka daga
frá 10 - 17.30

sundfrettamadur.is++
youtube_logo
flickr-yahoo-logo_png

Sundfólk ársins 2011

Eygló í BelgraðAnton Sveinn+
Eygló Ósk og Anton Sveinn sundfólk ársins 2011  mynd/gþh


2
0.12.2011
Eygló Ósk og Anton Sveinn sundfólk ársins
Í dag tilkynnti Sundsamband Íslands um val á sundkonu árisins og sundmanni ársins 2011.

Sundkona ársins 2011 er Eygló Ósk Gústafsdóttir Sundfélaginu Ægi.
Hún er stigahæsta íslenska konan í 25m laug í 100m skriðsundi (845 FINA stig) og næst stigahæst í 50 metra laug (791 FINA stig).
Eygló hefur á árinu sett og bætt Íslandsmet í 100 metra baksundi og 200 metra baksundi í báðum laugarlengdum auk þess að setja Íslandsmet í 200 metra fjórsundi í 25 metra braut.
Eygló Ósk er mjög fjölhæf sundkona og er margfaldur Íslandsmeistari í báðum brautarlengdum. Hún er mjög ákveðin og á auðvelt með að setja sér markmið og ná þeim.

Helsti árangur á árinu 2011 er eftirfarandi:
Á Smáþjóðaleikum í Liechtenstein vann Eygló til tvennra gullverðlauna þ.e. í 100 metra baksundi og 200 metra baksundi, auk tveggja bronsverðaluna í 200 metra skriðsundi og 800 metra skriðsundi. Auk þess vann hún til verðlauna í boðsundum á mótinu.

Á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fór í Belgrað í júlímánuði vann Eygló það einstaka afrek að vinna til silfurverðlauna í 200 metra baksundi á nýju íslandsmeti, aðeins 7/100 úr se´kúndu frá gullinu.
Auk þess keppti hún í 200m baksundi á Heimsmeistaramótinu í 50m braut, sem fram fór í Shanghai í Kína.

Á Norðurlandameistaramóti unglinga, sem fram fór í Laugardalslauginni nú í desember, varð Eygló Þrefaldur norðurlandameistari í 50, 100 og 200 metra baksundi.

Sundmaður ársins 2011 er Anton Sveinn Mckee Sundfélaginu Ægi
Anton Sveinn er stigahæsti íslenski karlmaðurinn í 25m (838 FINA stig)og sá næst stigahæsti í 50m laug (792 FINA stig).
Hann hefur á árinu sett og bætt Íslandsmet í 1500 metra skriðsundi og 800 metra skriðsundi í báðum laugarlengdum auk þess að setja Íslandsmet í 400 metra fjórsundi í 50 metra braut.
Anton Sveinn bætti m.a. 23 ára gamalt met Ragnars Guðmundssonar Ægi í 1500 metra skriðsundi, en það met var sett á Ólympíuleikunum í Seoul 1988. Þessum árangri náði hann á Smáþjóðaleikunum í Liectenstein í byrjun júní.

Anton Sveinn er margfaldur Íslandsmeistari í báðum brautarlengdum og er mjög fjölhæfur sundmaður eins og sjá má á upptalningunni hér að neðan nær hann góðum árangri í öllum sundaðferðum.  Hann hefur mikið úthald, en sterkastu er hann í milli- og lengri vegalendunum.

Helsti árangur á árinu 2011 er eftirfarandi:
Á Smáþjóðaleikum í Liechtenstein vann Anton til gullverðlaun í 1500 metra skriðsundi, silfurverðlauna í 400 metra fjórsundi og 400m skriðsundi og bronsverðlauna í 200 metra skriðsundi, 200 metra fjórsundi, og 200 metra flugsundi. Auk þess vann Anton til verðlauna með bosundsveitum Íslands.

Anton tók einnig þátt í Evrópumeistarmóti unglinga í Belgrad. Þar varð hann í 16. sæti í 400m skriðsundi, 11. sæti í 1500 metra skriðsundi  og 13. sæti í 800 metra skriðsundi.
Anton nái lágmarki á Heimsmeistaramótiði í 50m braut og keppti þar í 800m skriðsundi.

Anton Sveinn varð fjórfaldur norðurlandameistari á Norðurlandameistaramóti unglinga nú fyrr í desember. Þar sigraði hann í 1500 metra skriðsund á núju glæsilegu Íslandsmetii, 50 metra bringusundi, 400 metra fjórsundi og 400 metra skriðsundi.
 

04.12.2011
Ragnheiður endaði í 13. sæti
Ragnheiður Ragnarsdóttir synti í B úrslitum á Opna Hollenska meistaramótiniu í Eindhoven í dag. Ragnheiður synti á 56.29 sek, litlu hægar en í undanrásunum.
Sigurvegari í sundinu var hin 18 ára gamla sænska stúlka Sarah Sjöström, heimsmethafi í 100m flugsundi. Sigurtími hennar var 53.05 sek er nýtt Norðurlandamet, bæting á meti Theresu Alshammar um rúma hálfa sekúndu. Þessi tími er sá besti sem kona hefur náð í ár og 6. besti árangur frá upphafi, í 100m skriðsundi. Sannarlega glæslilegt sund. Þrjár konur syntu undir Ólympíulágmarkinu í þessu sundi.
Árangurinn í 100m skriðsundi í Eindhoven er mun betri en á Bandaríska meistaramótinu í Atlanta. Sigurtíminn þar hefði aðeins dugað í 5. sæti í Eindhoven.
Nú eru spennandi mánuðir framundan hjá því sundfólki sem reynir að komast á Ólympíuleikana. Hverjum verða valdir af hálfu FINA verður tilkynnt þann 4. júní n.k.

04.12.2011
Ragnheiður syndir í B úrslitum
Síðasti keppnisdagur Opna Hollenska meistaramótsins hófst í morgun í Eindhoven. Þá synti Ragnheiur Ragnarsdóttir í undanrásum 100m skriðsunds kvenna. Ragnheiður hafnaði í 11. sæti, rétt eins og í 50m skriðsundinu. Hún fékk tímann 56.14 sek. Besti tími hennar í ár er sigurtíminn á ÍM50 56.10 sek, en Íslandmsmetið er 55.66 sem Ragnheiður setti árið 2009 í Reykjanesbæ. Ólympíulágmarki er hins vegar 54.57 sek. Bestum tíma í undanrásunum náðí sænska sundkonan Sara Sjöström 53.99 sek.

Í nótt lauk Bandaríska meistaramótinu í Atlanta. Einn íslendingur náði inn í C úrslitariðil í undarásunum í gær. Það var Árni Már Árnason, sem keppti til úrslita í 200m bringusundi. Árni varð í 30. sæti og synti á sama tíma og í undanrásunum 2:18.99 mín. Sigurvegari í greininni varð Brendan Hansen USA með tímann 2:09.64 mín, en Íslandsmetið er í eigu Jakobs Jóhanns Sveinssonar 2:12.39 mín frá því á HM 2009.

03.12.2011
Slakur dagur - einn í C úrslit!
Íslenska sundfólkið sem keppti í undanrásum Bandaríksa meistarmótsins átti frekar slakan dag í dag, sérstaklega stúlkunrnar.
Árni Már Árnason keppti í 100m skriðsundi og synti ágætt sund. Besti tími hans í greininni er frá því á ÍM50 í apríl á þessu ári 51.17. Árni synti í dag á 51.50 sek, sem dugði aðeins í 50. sætið í greininni, en 30. sætið hefði fleitt honum inn í C úrslitariðilinn. Íslandsmetið á Örn Arnarson 49.97, en boðslágmark Fina er 50.53 sek. Besta tímanum í undanrásunum náði Richard Beremse USA 49.12 sek.
Árni Már tók einnig þátt í 200m bringusundinu í dag. Þar náði hann inn í C úrslitariðilinn - 30. sæti með tímann 2:18.99 mín. Besti árangur hans er 2:14.92 mín frá árinu 2006, en Árni hefur ekki lagt mikla rækt við þessa vegalengd á undanförum árum. Bestum tíma undanrásanna náði Elliot Keefer USA 2:13.12 mín.

Sarah Bateman, sem sett nýtt Íslandsmet í 50m skriðsundi í gær, synti ekki vel í undanrásum 100m skriðsunds kvenna. Hún varð í 66. sæti með tímann 58.29 sek, langt frá hennar besta tíma. Besti árangur Söruh er 56.55 sek, en Íslandsmet Ragnheiðar Ragnarsdóttur er 55.66 sek. Bestum tíma í undarásunum náði Dana Volmer USA 55.09 sek.

Þá var komið að undanrásum í 200m bringusundi kvenna. Satt best að segja syntu Hrafnhildur og Erla Dögg langt frá sínum bestu tímum í dag. Hrafnhildur er Íslandsmethafi í 200m bringusundi með tímann 2:31.29 frá því á HM árið 2009. Í dag synti Hrafnhildur á 2:39.76 mín og varð í 48. sæti. Þetta er slakasti tími í þessari vegalengd hjá Hrafnhildi í mörg ár.
Erla Dögg gerði lítið betur en Hrafnhildur. Hún varð í 50. sæti á tímanum 2:40.07. Besti tími hennar í 200m bringsundi er 2:32.49 mín frá því 2008. Bestum tíma í undanrásunum náði Amanda Beard USA, synti á 2:27.24 mín. Hún er 30 ára gömul og vann til tveggja silfuverðlauna á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996 í 100 og 200m bringusundum, þá 14 ára að aldri.

Líkleg skýring á þessum slaka árangri í dag er að sundfólkið er litið eða ekkert hvílt fyrir þetta mót. Sé það tilfellið þá eigum við von á góðum árangri þegar það tekur fulla hvíld og keyrir upp fyrir mót. Ekki má ætlast til þess svona snemma keppnistímabils að sundfólkið í USA sem að æfir og keppir að mestu í 25 jarda laugum, sé tilbúið í slagin í 50m brautinni. Þjáfarar þeirra leggja aðaláhersluna á að ná árangri fyrir skólann sinn, en Bandaríska háskólameistaramótið fer fram í mars 2012. Margt heimsfrægt sundfólk er ekki að synda vel á þessu móti, en er með til þess að prufa sig í 50m lauginni mitt á stuttubrautar tímabilinu.
En tíminn er naumur, því undir lok maí 2012 verður heimslistanum lokað og þann 3. júní verður tilkynnt hverjir hafa komist inn á Ólympíuleikana. Meira um það síðar í desember.

03.12.2011
Árni Már bætir sig aftur
Í nótt fóru fram úrslitasund á Bandaríska meistarmótinu í Atlanta. Í stað þess að synda undanúrslita eins og gert er á öllum alþjóðlegu meistaramótunum, þá velja Bandaríkjamennirnir að synda í þremur riðlum til úrlsita þ.e. A, B og C úrslitariðlum. 10 sundmenn synda í hverjum riðli, samkvæmt nýlegum reglum FINA.Arni Mar brosir
Í nótt syntu tveir íslendingar til úrslita á mótinu. Það voru þau skötuhjúin Árni Már Árnarson og Erla Dögg Haraldsdóttir.
Árni synti til úrlsita í C úrslitariðlinum í 100m bringusundi. Í undanrásunum hafði hann bætt persónulegt met sitt í greininni. Í úrslitasundinu bætti hann um betur og bætti sig aftur, synti á tímanum 1:02.74 mín, sem er annar besti tími Íslendings frá upphafi. Árni varð í 25. sæti í sundinu. Sigurvegari í sundinu var hinn þrítugi Brenda Hansen USA. Sigurtíminn var 1:00.31 mín.
Erla Dögg keppi einnig til úrslita í 100m bringsundi í B úrslitariðl. Hún bætti tímann sinn frá því í undanrásunum, synti á 1:11.06 mín, sem er besti tímin hennar síðan 2008, en þá synti hún á 1:10.66 mín. Erla hafnaði í 16. sæti, en sigutími Heimsmeistarans Rebekku Soni USA var 1:05.83 mín. Hún virðist í góðu formi, því sigurtíminn er aðeins um 0.7 sek frá sigurtíma hennar á HM.

Árni Már hefur góða ástæðu til að brosa - mynd/gþh
Mótið heldur áfram í kvöld með undanrásum. Þar keppa allir fjórir íslendingarnir sem þátt taka í mótinu. Sarah Bateman og Árni Már synda 100m skriðsundi og Erla Dögg og Hrafnhildur synda í undanrásum 200m bringusunds.
Þá keppir Ragnheiður Ragnarsdóttir í undanrásum Opna Hollenska mótsins í 100m skriðsundi í fyrramálið.

Raganheiur02.12.2011
Ragnheiður með ágætt sund
Ragnheiður Ragnarsdóttir synti í B úrslitariðli á Opna Holleska mótinu í Eindhoven nú síðdegis. Í undanrásunum í morgun lenti hún í 11. sæti á tímanum 25.86 sek. Í B úrslitasundinu synti hún á 25,70 sek og náði 10.-11.sæti í sundinu. Sigurvegari í sundinu var Ramomi Kromowidjojo frá Hollandi, með tímann 24.30 sek.
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu þá ætlaði Ragnheiður að reyna við Ólympíulágmarki sem er
25.27 sek. Sjálfsagt hefur henni brugðið við fréttina að Sarah Bateman hefði bætt Íslandsmet hennar í greininni á Bandaríska meistaramótinu. Margir töldu að það myndi gefa henni aukin kraft til þess að synda hratt á mótinu í Eindhoven. Það er skemmtilegt að svona hörð keppni skulu vera orðin í einstaka sundgreinum, því a mun að lokum leiða til betri árangurs.
Ragnheiður Ragnarsdóttir - mynd/gþh

Undanrásir á öðrum keppnisdegi Bandaríska meistaramótsins héldu áfram í dag, en úrslitin fara fram í nótt.
Sarah Bateman keppti í 100m flugsundi í undanrásum og náði sér ekki á strik
. Hún hafnaðií 35. sæti og synti á tímanum 1:01.85 mín, sem er langt frá Íslandsmeti hennar sem er 1:00.15 mín. Það setti hún á Bandaríska meistaramótinu í ágúst 2010.
IMG_2963+
Þá kepptu þær stöllur Erla Dögg Haraldsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir í undanrásum í 100m bringusundi. Hrafnhildur er Íslandmethafi í greininni (1:09.82), átti slakan dag og hafnaði í 47. sæti með tímann 1:13.29 mín. Það er langt frá hennar besta tíma. Þeir sem fylgjast hvað best með árangri íslenskra sundmanna hafa veitt því athygli að Hrafnhildur hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er þessu keppnistímabili í jardalauginni. Vonandi að hún nái sér upp úr þessari lægð sem hún virðist vera í um þessar mundir. E.t.v. er Hrafnhildur algerlega óhvíld og ætlar sér stóra hluti síðar á keppnistímabilinu?
Erla Dögg Haraldsdóttir synti hinsvegar vel í 100m bringusundinu varð í
18.-19. sæti með tímann 1:11.27 mín. Þetta er nærri hennar besta tíma sem er 1:10.66 frá því 2008. Erla syndir í B úrslitum í nótt og verður fróðlegt að sjá hvort henni tekst að bæta sig.                                              Hrafnhildur og Erla á fullri ferð á Smáþjóðaleikum - mynd/gþh

Árni Már Árnason tók einnig þátt í undanrásum 100m bringusunds karla. Þar sett hann perónulegt met synti á tímanum 1:02.83 mín. sem er 2/100 betri tími en hann náði á Smáþjóðaleikunum á Kýpur í júní 2009. Tími Árna nægði í 24. sæti í sundinu og keppi hann því í C úrslitariðli í nótt. Með tímanum í undanrásunum náði Árni boðslágmarki FINA í 100m bringusundi.

02.12.2011
Spennandi einvígi um Íslandsmetin um helgina
Um helgina fara fram tvö sterk alþjóðleg sundmót í 50m braut, þar sem sundfólk víðsvegar úr heiminum reynir að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London.
Í Atlanta í Bandaríkjunum fer fram Bandaríska meistaramótið í sundi. Venjulega er þetta mót haldið í 25 yarda laug, en vegna nálægðar Ólympíuleikana, þá lætur Bandaríska sundsambandið móti fara fram í 50m braut. Fjölmargt erlent sundfólk tekur þátt í mótinu, þar á meðal fjórir íslenskir sundmenn. Það eru þau Hrafnhildur Lúthersdóttir, Erla Dögg Hararldsdóttir, Árni Már Árnason og Sarah Bateman. Öll stunda þau nám við bandaríska háskóla.

Í nótt synti Sarah Bateman í B úrslitariðli í 50m skriðsundi kvenna og gerði sér lítið fyrir og sló
Íslandsmet Ragnheiðar Ragnarsdóttur í greininni. Sarah synti á 25.52 sek, en Íslandsmet Ragnheiðar var 25.55 sek var frá því á HM í Róm árið 2009. Hún hafnaði í 12. sæti  í sundinu.Sarah synti á tímanum 25.88 sek í undrásunum.
Í morgun hófst alþjóðlegt sundmót í Eindhoven í Hollandi. Þar er meðal keppenda Ragnheiður Ragnarsdóttir og synti hún í undarásum 50m skriðsunds í morgun. Ragnheiður fékk tímann 25.86 sek, eða 2/100 úr sek betri tíma en undanrásatími Söruh. Ragnheiður lenti í 11. sæti í undanrásunum og keppnir því í B úrslitariðli síðar í dag. Spennadi verður a fylgjast með því hvort að Íslandmetið í 50m skriðsundi falli aftur í dag. Ólympíulágmarkið í greininni er 25.27 sek.

Árni Már keppti einnig í 50m skriðsundi, en þar á hann Íslandsmetið 22.81 sek, frá því á Ólympíuleikunum í Peking. Tími Árna í undanrásum var 23.06 sek, sem rakti til 21. sætis. Árni synti því í C úrslitariðli og hafnaði í 25. sæti á tímanum 23.06.
Þá keppti Erla Dögg í 200m fjórsundi kvenna. Hún hafnaði í 83. sæti á tímanum 2:22.71 mín, sem er lagt frá hennar besta tíma.

Í dag (kvöld) eru allir fjórir íslendingarnir meðal keppenda í undanrásum bandaríska meistaramótsins. Hrafnhildur, Erla og Árni Már keppa í 100m bringusundi, en Sarah í 100m flugsundi.
 

13.11.20111
Enn eitt supersundið hjá Eyglóu!
Á síðasta hluta IM25 féllu tvö Íslandsmet í kvennaflokki. Hin 16 ára gamla Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi hefur átt Eygló Ósk1framúrskarandi gott mót, bætti nú eigið Íslandsmet í 200m baksundi um rúmlega 3 sekúndur. Lokatími Eyglórar var 2:08.00 mín og bætti hún þar með eigið met sem hún setti fyrir þremur vikum síðan í Hafnarfirði. Eins og við sögðum frá í morgun kaus hún að synda 200m fjórsundið hratt í undanrásunum í morgun, en sleppa því að synda það til úrslita til þessað einbeita sér að 200m baksundinu. Þessi ákvörðun reyndist rétt, því Eygló synti 200m baksundið feikna vel og að miklu öryggi. Með því að synda á þessum tíma hefði Eygló synt sig inn í 8 manna úrslit á EM25 í fyrra. Hún tekur ekki þátt í EM25 í ár, hefur ákveði að einbeita sér að Norðurlandamóti unglinga sem fer fram í Reykjavík sömu helgina og EM25 í Póllandi.
Eygló sem tók miklum framförum í 50m brautinni á s.l. sumri og vann m.a. til siflurverðlauna á Evrópumóti unglinga í 200m baksundinu, en er að fylgja þeim framförum vel eftir í 25m brautinni. Nú er að fylgja góðum árangri í 25m brautinni eftir, því framundan er Ólympíuár og þar gildir aðeins árangur í 50m braut. 

Inga Elín Cryer ÍA, sem hefur átt gott mót, bætti eigið Íslandsmet í 400m skriðsundi. Hún synti á 4:15.09 og bætti gamla metið sitt um 4/100 úr sek. Fyrr á mótinu hafði Inga Elín bætt Íslandmetin í 800m skriðsundi og 200m flugsundi.

Árangurinn á mótinu í ár er góður og greinilegt að breiddin er að aukast aftur í sundíþróttinni. Þeir bestu, þó aðallega konurnar eru í mikill framför, en þess ber að geta að sex landsliðsmenn í sundi stunda nám í Bandaríkjunum og tóku því ekki þátt í mótinu. Margt ungt sundfólk sýndi miklar framfarir, þannig að ef að vel verður staðið að uppbyggingunni þá er engu að kvíða í sundíþróttinni. Nokkrar hugmyndir eru uppi um hvað eigi að taka til bragðs, en skortur á fjármagni kemur í veg fyrir flest þeirra áforma komist í gagnið. Meira um það seinna.

Kíkið á flickr og skoðið myndir sundfretta.is frá mótinu. Við höfum einnig sett nokkar sundgreinar inn á You Tupe rásina okkar.

Eygló Ósk13.11.2011
Enn eitt Íslandsmetið hjá Eyglóu Ósk
Í undanrásum í morgun bætti Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi Íslandsmet Erlu Daggar Haraldsdóttur ÍRB í 200m fjórsundi um 1/10 úr sek. Tími Eyglóar var 2:15.22 mín.
Eygló heldur áfram að synda hratt í undanrásum, rétt eins og í gær, þegar hún bætti sig um tæpar tvær sekúndur í 100m baksundi í úrslitasundinu, eftir að hafa sett Íslandsmet í undanrásum. Eygló Ósk mun ekki synda 200m fjórsund til úrslita í kvöld, en kýs að einbeita sér að 200m baksund. Þar á hún möguleika á að fella enn einn múrinn þ.e. að syndi á skemmri tíma en 2:10mín.
Eygló Ósk - mynd/gþh

 

Eygló og Ingibjörg12.11.2011
Eygló fyrst kvenna undir mínútu í 100m baksundi
Góður árangur náðist á þriðja keppnisdegi Íslandsmótsins í 25m braut í dag. Hæst bar árangurinn í 100m baksundi kvenna á mótinu í dag. Strax í undanrásum synti Ingibjörg Kristín Jónsdóttir SH á persónulegu meti 1:02.07 mín, aðeins 15/100 úr sek frá Íslandsmetinu. Í næsta riðli undanrásanna synti Íslandsmethafinn Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi og bætti eigið þriggja vikna gamla met og synti á 1:01.75 mín. Í samtali við sundfrettir.is sagði Eygló hafa synt létt og gaf til kynna að hún gæti synt mun hraðar í úrslitasundinu.
Það átti eftir að koma á daginn, því í úrslitasundinu sigraði Eygló á nýju Íslandsmeti 59.81 sek og var þar með fyrst íslenskra kvenna til þess að synda 100m baksund á skemmri tíma en 60 sek. Frábær árangur!
Ingibjörg synti einnig mjög vel, leiddi sundið allt fram til síðustu 5 metrana að Eygló seig framúr og kom vel inn í bakkann.
Baksundstöllurnar við mótslok í dag
Tími Ingibjargar var 59.85 sek. Stórskemmtilegt sund sem á eftir að fara í sögubækurnar. Íslandsmetið er auðvitað einnig stúlknamet hjá Eyglóu.
Nú hafa stúlkurnar fellt hinn sálræna 60 sek múr og búast má við meiri framförum hjá þeim í nánustu framtíð. Árangur þeirra hefði dugað í 9. sæti á EM25 í fyrra.
Eygló sigraði einnig í 200m skriðsundi á nýju stúlknameti. Sigurtími hennar var 2:00.25 mín, sem er annar besti árangur á Íslandi frá upphafi í þessari grein.
Bryndís rún
Fleiri Íslandsmet áttu eftir að falla áur en yfir lauk. Bryndis Rún Hansen, sem nú æfir með og keppir fyrir Bergensvömmerne í Noregi bætti eigið Íslandsmet í 50m flugsundi. Sigurtími hennar var 27.04, en gamla metið var 27.24 sek. Það styttist nú í að Bryndis brjóti 27 sekúnda múrinn og á þá möguleika á að ná inn í undanúrslit á EM í 25m, en hún verur meðal keppenda á EM í desember n.k.
Bryndís virðist vera í betri æfingu núna en nokkru sinni fyrr, því hún synti einnig vel í 100m skriðsundinu í gær. Fróðlegt verður að fylgjast með henni í 100m flugsundinu á morgun.

Bryndís Rún ánægð eftir metsundið í dag - mynd/gþh

Í 4x50m fjórsundi kvenna gerðust aftur undur og stórmerki. Ingibjörg Kristín synti fyrsta sprett á baksundi fyrir sveit SH og bætti Íslandsmetið sem hún setti í gær um nærri hálfa sekúndu, synti á 27.49 sek sem er frábær tími og fékk því miður ekki verðskuldaða athygli mótsgesta. Þessi tími hefði dugað í 5. sætið á EM25 í fyrra. Fróðlegt verður að fylgjast með Ingibjörgu á EM í desember.
Kvennasveit SH bætti eigið Íslandmet í 4x50m fjórsundinu syntu á 1:56.23 mín. Gamla metið var 1:57.46 frá því í fyrra.

11.11.2011
Tvö Íslandsmet og ein metjöfnun
Kristinn Þórarinsson
Úrslitahluti annars keppnisdags fór vel af stað. Í fyrstu sundgreininni jafnaði Ragnheiður Ragnarsdóttir KR eigið Íslandsmet í 100m fjórsundi, synti á 1:01.72 mín, nákvæmlega sama tíma og í undanrásunum. Ragnheiður fékk óvænta keppni frá Eyglóu Ósk Gústafsdóttur sem synti fjórsundið mjög vel og var aðeins 0.28 sek. á eftir Ragnheiði. Tími Eyglóa 1:02.00 er nýtt stúlknamet.
Inga Elín Cryer ÍA bætti við enn einu Íslandnsmetinu með sigurtíma sínum í 200m flugsundi. LokatíminnIngibjörg Kristín var 2:16.72 mín bæting á eigin meti um 1.25 sek.
Þá var komið að Ingibjörgu Kristínu Jónsdóttur SH að setja Íslandmet enn einu sinni í 50m baksundi. Þar sigraði hún á tímanum 27.91 sek. Gamla meti 28.11 sek setti Ingibjörg fyrr í haust. Með tíma undir 28 sekúndum ætti Ingibjörg að komast í undanúrslit á Evrópumótinu í 25m laug nú í desember. Spennandi tímar frammundan hjá henni.
Eygló Ósk var ekki langt undan synti á 28.25 sek, sem er nýtt stúlknamet í greininni.
Þá bætti Kristinn Þórarinsson Fjölni piltamet Arnar Arnarson í 100m fjórsundi, þar sem hann sigraði og vann þar með til fyrsta Íslandmeistaratiltils í fullorðinsflokki. Sigurtími Kristins var 58.77
Kristinn mætti ákveðin til leiks  mynd/gþh                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                       Ingibjörg Kristín í metsundinu - mynd/gþh

11.11.2011
Þrjú Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi ÍM25
ÍInga Elínslandsmótið í 25m braut hófst með látum í gær með Íslandsmetum í öllum þremur einstaklingsgreinunum sem kepp var í.

Inga Elín Cryer ÍA reið á vaðið og sigraði með yfirburðum í 800m skriðsundi kvenna.Tími hennar 8:46.42 mín. er nýtt Íslandmet. Inga bætti Íslandsmet Sigrúnar Bráar Sverrisdóttur Ægi um 5/100 úr sekúndu. Met Sigrúnar var sett á þessu sama móti árið 2009.
Inga Elín synti nokkuð jafnt sund, þar sem hún hélt 33.+ á hverjum 50m eftir fyrstu 200 metrana. Millitími hennar við 400m markið var 4:18.80, þannig að síðari 400 metrana syndir hún á 4:27.62 mín.

Inga Elin í metsundinu  mynd/gþhAnton Sveinn

Strax í næstu sundgrein fauk eitt af eldri metum á metaskránni. Anton Sveinn Mackee Ægi sigraði örugglega í 1500m skriðsundi á nýju Íslandsmeti. Hann synti á 15:23.97 mín. Gamla metið átti Örn Arnarson SH 15:25.94 mín, sett í nóvember árið 2000.
Anton Sveinn byrjaði sundið mjög vel og millitími hans eftir 500m var 5:03.59. Þessi millitími gaf til kynna lokatíma upp á 15:15 eða þar um bil. Við 1000m markið var millitími Antons 10:12.14, sem gaf fyrirheit um lokatíma um 15.20. Anton gaf notkkuð eftir síðustu 500 metrana þannig að lokatíminn varð nokkuð lakari en millitíma höfðu gefið tilefni til að ætla. Gott sund eigi síður og Íslandmetið í höfn.                                                                                                                                                                                                                               Anton strax að loknu metsundi mynd/gþh

Það var svo Ragnheiður Ragnarsdóttir KR, sem setti Íslandsmet í síðustu sundgrein fyrsta keppnisdagsins, 100m fjórsundi. Þar bætti Ragnheiður Íslandsmet Erlu Daggar Haraldsdóttur ÍRB um 5/100 úr sek. Nýja met Ragnheiðar er því 1:01.72.
Erla Dögg setti eldra metið á IM25 fyrir um ári síðan. Fullvíst er að Ragnheiður mun bæta metið aftur í úrslitasundinu í dag.
Þá féllu a.m.k. tvo aldursflokkamet á m´toinu í gær.
Eygló Ósl Gústafsdóttir Ægi bætti stúlknamet Sigrúnar Bráar Sverrisdóttur Fjölni í 200m skriðsundi. Þar synti Eygló fyrsta sprettinn í boðsundsveit Ægis á tímanum 2:00.40 og bætti eldra metið um 1.18 sek.
Þá setti Arnór Stefánsson SH dregnjamet í 1500m skriðsundi, þar sem han synti á 16:32.96 mín. Eldra metið átti hann sjálfur.

29.10.2011
Franklin má ekki taka við verðlaunafénu
Í síðustu viku sögðum við frá heimsmeti Missy Franklin USA í 200m baksundi á Heimsbikarmóti í Berlin. Á heimsbikarmótaröðinni eru peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin á hverri sundgrein og auk þess 10.000 dollara bónus fyrir að setja heimsmet. Franklin var efts á peningalistanum eftir mótið í Berlín, en nú lyggur það fyrir að hún mun ekki taka þátt í þremur síðustu Heimsbikarmótunum, þó svo a nokkrar upphæðir séu í boði. Sérfræðingar hafa áætlað að hún gæti unnið sér inn allt að 70 þús. dollara, um 8 mill. Íkr, keppti hún á mótunum sem eftir eru.
Ástæða þess að Missy má ekki taka við verðlaunafénu eru áhugamannareglur Bandaríska háskólaíþróttasambandsins (NCAA).
Reglur þessar eru mjög strangar og ef Missy tæki vi verðlaunafénu, þá missti hún keppnisrétt fyrir háskólann þar sem hún stundar nám.
Þetta mun líklega leiða til þess að Íslandsvinurinn Tessa Alshammar sigrar í samanlagðri stigakeppni heimsbikarmótanna og gæti unnið allt að 100 þús. dollarar í samanlagt verðlaunafé, annað árið í röð.

28.10.2011
Alexander Dale Oven valin Sundmaður Evrópu 2011
Árlega eru bestu íþróttafólk Evróðu valin í hverri grein sundíþrótta. Það eru sundfréttamenn, stjórnar- og nefndarmenn LEN, auk allra aðildarsambanda LEN sem velja þá bestu í hverri íþróttagrein.
Sundmaður ársins í Evróu fyrir áið 2011 var valinn norski sundmaðurinn og Íslandsvinurinn Alexander Dale Oven, eftir harða keppni við franska baksundsmaninn Camille Lacourt. Alex varð m.a. heimsmeistari í 100m bringusundi á HM í Shanghai og vann þar með til fyrstu gullverðlauna Normanna í sundi. Það geri hann þrátt fyrir miklar tilfinningar vegna hryðjuverkanna sem framin voru í Noregi dagin fyrir upphaf HM.
Annar Norðurlandabúi var meðal þriggja efstu í sundi. Það er hin 34 ára Sænska sundkona therese Alshammer.
Þá voru einnig valin íþróttamenn Evróðu í kvenna og karalflokkum fyrir dýfingar, sundknattleik, víðavangssund og í kvennaflokki í sundfimi.

Swimming Men          
1. Alexander Dale Oen (NOR) 31.9%
2. Camille Lacourt (FRA) 28.9%
3. Jeremy Stravius (FRA) 20.3%

Swimming ‐Women
1. Federica Pellegrini (ITA) 62.9%
2. Rebecca Adlington (GBR) 15.7%
3. Therese Alshammar (SWE) 14.3%                         Sjá einnig frétt á mbl.is

23.10.2011IMG_8397+ (320x292)
Íslandmet í 200m baksundi kvenna
Á síðasta hluta Stórmóts SH í sundi bar hæst Íslandsmet Eyglóar Óskar Gústafsdóttur Ægi í 200m baksundi. Eygló bætti eigið met um 0.95 sek og synti á tímanum 2:11.29 mín. Þetta er annað Íslandsmet Eyglóar á mótinu, en í gær bætti hún Íslandsmetið í 100m baksundi.

Þá bætti Jón Margeir Sverrisson Fjölni Íslandsmetið í 400m skriðsundi, sem hann sett í gær í millitíma í 1500m skriðsundi. Nú synti Jón á 4:19.47 mín og bætti metið nú um rúmar 5 sek,
Eftir þrjár vikur fer Íslandsmótið í 25m braut fram og veður fróðlegt að fygljast með árangrinum þar, í ljósi úrslitanna nú.
                                                                   Eygló ræðir við þjálfara sinn Jacky eftir metsundið
                                                                                                                                                                               mynd/gþh
IMG_8385+
22.10.2011
Heimsmet og Íslandsmet falla í Firðinum
Í dag hófst í Ásvallalaug i Hafnarfirði hið árlega Stórmót SH. Árangur á mótinu var góður, en hæst bera heimsmet Jóns Margeirs Sverrissonar úr Fjölni í 1500m skriðsundi í flokki fatlaðra, þegar hann synti á tímanum 16:47.98 mín og bætti sig um rúmar 13 sek. Milliitímar Jóns við 400m og 800m markið (4:24.74 og 8:55.89 mín) voru einnig Íslandsmet og er tíminn í 800m heimsmet. Jón Margeir hefur tekið miklum framförum á síðustu misserum. Í dag lágu tvö heimsmet og þrjú Íslandmet í fötlunarflokki S14. 
Jón Margeir á fullri ferð   mynd/gþh
Þá bætti Eygló Ósk Gústafsdóttir Ægi eigið Íslandmet í 100m baksundi, synti á tímanum 1:01.92. Gamla metið var 1:02.13 mín. frá því
Ingibjörg K. Jónsdóttir SH bætti eigið Íslandsmet í 50m baksundi. Tími hennar var 28.11 sek og bætti hún eldra metið um 0.33 sek., sem hún setti í fyrr á árinu. Góður árangur svona snemma keppnistímabils.

Missy Franklin22.10.2011
Heimsmet í 200m baksund kvenna
Í dag fór fram fyrri keppnisdagur á heimsbikarmótinu í Berlín. Þar bar það helst til tíiðinda að bandaríska stúlkan Missy Franklin bætti heimsmetið í 200m baksundi, þegar hún kom í mark á tímanum 2:00.03 mín. Fyrra metið átti Sakai frá Japan 2:00.18,sett á þessu sama móti árið 2009.
Heimsmetið í 200m baksundi er fyrsta heimsmetið sem sett er í 25 eða 50m braut síðan gúmmígallarnir voru bannaðir. Svo virðist að ekki líði á löngu þar til að fyrsta konan brjóti 2ja mínútna múrinn í 200m baksundi.
Franklin, sem varð heimsmeistari í 200m baksundi í HM í Shanghai í júlímánuði sagði  eftir sundið í dag “frábær sundlaug, frábær tími, þetta er ótrúlegt”. Úrslit frá mótinu má finna á Omegatiming.

 

[Aqua Sport] [Staðsetning] [Hafa samband] [Sundfréttir] [Sundföt o.fl.] [Kennsla / þjálfun] [Laugarbúnaður]

© Copyright Aqua Sport ehf 2008. All rights reserved.